Forsíða   
Spurning
Sendið okkur spurningar og við birtum þær og svörin hér á síðunni.
  Nafn: 
  Netfang: 
  Fyrirspurn: 
 
  
Spurt og Svarað

 • Sæl
mig dreymdi í morgun draum sem ég man bara endinn á. Ég var stödd í húsi, fanst ég eiga heima þar en með mér þar var fólk úr ýmsum áttum og það var ruslaraleg og óreyða í húsinu. Þá er bankað og ég fer til dyra og þá er móðir mín komin en hún dó fyrir 8 árum. Ég faðma hana heitt að mér og býð henni inn. Þá sé ég út um gluggnann að það er komið annað hús framan við húsið sem var þar ekki áður. Það er stórt og mikið timburhús, nýtt og reisulegt. Upp úr því vakna ég. (Sjá svar hér neðar á síðunni).
 • Góðan daginn

Mig dreymdi að ég væri einhvars staðar í stóru húsi og fólk í kringum mig væri að missa tennur eða fá kýli, ég þoli ekki að horfa upp í fólk þannig að ég hélt mér í hæfilegri fjarlægð. Ég náði að fela mig en heyrði aðra vera tala um tannamissi. Reyndar var ein tönnin laus hjá mér., Ég komst ekki út úr húsinu

Kv Kristin. (Sjá svar hér neðar á síðunni).
 • Góðan Dag!

Mig dreymdi atburði sem sitja í mér og valda mér smá hugarangri, ef þið hafið einhvað innlegg þá væri það vel þegið.

Ég man atburðarrásina og aðdraganda óljóst en það sem ég man er mjög skírt.

Ég var stödd á æskuslóðum en samt ekki í foreldrahúsum heldur var ég á gistiheimili í litlu, tómlegu herbergi, ein um miðja nótt og var að reyna að ná að sofa. það var einhver að veita mér eftirför og ég gat ekki sofið því ég hafði áhyggjur yfir því að viðkomandi myndi brjótast inn og meiða mig. ég var mjög skelkuð og var hrædd um líf mitt.
Ég vaknaði upp úr þessum draum og leið ekki vel, eins og ég væri enn hrædd þó ég væri vöknuð! þegar ég náði loksins að sofna aftur þá dreymdi mig að ég væri í fríi með manninum mínum ( veit ekki hvar, ekki á æskuslóðum) en við vorum allanvega að ganga inn á annað gistiheimili, herbergið var mjög stórt, fagurt, fullt af bókum (man að það voru bækur um sjálfsstyrkingu svipað og Dale Carnegie), það var góð aðstæða til að elda og rúmið var rosalega stórt og fallegt. Samt leið mér eins og ég væri hrædd inn í mér. Allt í einu var ég farin að elda fyrir manninn minn, inni á gistiheiilinu. ég var að meðhöndla kjúklingabringu og það var einhver blettur sem ég var að reyna að hreinsa (dökkur blettur). Svo var ég allt í einu komin með Sveðju í hendina og var að afhöfða önd, eins og ég væri að fara að elda hana ( var með fjöðrum og öllu). Ég man ekki hvort að öndin hafi verið lifandi þegar ég hjó á hálsinn, en það sem ég man var að í draumnum starði ég hálf hrædd á höfuðið á skurðabrettinu eftir að ég hafði höggvið höfuðið af. Ég starði á dökk dökk rauðan blóðdropa sem var á höfði andarinna frekar stjörf. Svo vaknaði ég upp úr draumnum.
þegar ég var vöknuð þá leið mér eins og ég væri ennþá hrædd!!

Mér fannst þetta mjög óþæginlegur draumur, haldið þið að hann hafi einhverja þýðingu? (Sjá svar hér neðar á síðunni).
 • Góðan dag..
Í nótt dreymdi mig svo skrýtin draum. En ég man ekki alveg allt, það sem ég man að ég var á leiðini í jarðaför hjá vinkonu minni sem er látin og ég var að verða sein í hana. Var að slétta á mér hárið hjá stelpu sem ég þekki mjög lítið og átti eftir að gera svo mikið áður en ég fór í jarðaförina og var alltaf að kíkja á klukkuna. Svo man ég að ég er með vinkonu minni sem er látin og við erum að reyna að komast eitthvert og við förum inní eitthvað rými og þar átti að vera hurð en það var búið að taka hurðina og steypa fyrir opið og ég man að veggirnir voru svona hrufóttir og svo finnum við lyftu og með okkur var fullt af fólki sem ég þekki ekki og þegar við förum í lyftuna þá ýti ég á hæð 7 og takkinn festist inni og það kom ekki ljós á hann þannig hann virkaði ekki og vinkona mín segir mér að við erum ekki að fara þangað og ég man ekki alveg hvort hún ýtti á hæð 2 eða 3 og svo vakna ég. Vitið þið eitthvað hvað þetta gæti þýtt ? (Sjá svar hér neðar).

24.janúar 2013, 21:27 Sendandi Katrín Ásgrímsdótir
Fyrirspurn: Sæl
mig dreymdi í morgun draum sem ég man bara endinn á. Ég var stödd í húsi, fanst ég eiga heima þar en með mér þar var fólk úr ýmsum áttum og það var ruslaraleg og óreyða í húsinu. Þá er bankað og ég fer til dyra og þá er móðir mín komin en hún dó fyrir 8 árum. Ég faðma hana heitt að mér og býð henni inn. Þá sé ég út um gluggnann að það er komið annað hús framan við húsið sem var þar ekki áður. Það er stórt og mikið timburhús, nýtt og reisulegt. Upp úr því vakna ég. (Sjá svar hér neðar á síðunni).
Svar: Draumurinn hefur á sér yfirbragð tímamóta og það að þig dreymi látna móður þína undirstrikar það enn frekar. Þekkt er í draumfræðunum að draumar af látnum ástvinum birtast gjarnan á stórum tímamótum í lífinu. Talan 8 kemur fyrir en hún er talin tengd eilífð og hringrás.

Húsið í byrjun draumsins og fólkið gæti táknað þig sjálfa og hið stærra umhverfi, t.d. atvinnu og vinnustað. Kannksi hefurðu búið við ákveðna óvissu þar varðandi skipulag t.d.

En það birtir til, blærinn á draumnum breytist þegar þú sérð reisulega og nýja timburhúsið sem allt í einu birtist fyrir framan húsið sem þú byrjar drauminn í.

Þetta timburhús birtist þegar þú hittir látna móður þína. Timbur í þessu samhengi er gott tákn fyrir nýjan vöxt og traustleika og gæti táknað nýja leið á vinnustað þínum (timburhúsið nýja).

Dýrmæt draumreynsla.


7.janúar 2013, 16:14 Sendandi Krissa
Fyrirspurn: Góðan daginn

Mig dreymdi að ég væri einhvars staðar í stóru húsi og fólk í kringum mig væri að missa tennur eða fá kýli, ég þoli ekki að horfa upp í fólk þannig að ég hélt mér í hæfilegri fjarlægð. Ég náði að fela mig en heyrði aðra vera tala um tannamissi. Reyndar var ein tönnin laus hjá mér., Ég komst ekki út úr húsinu

Kv Kristin. (Sjá svar hér neðar á síðunni).
Svar: Í byrjun draumsins ertu stödd einhvers staðar í stóru húsi sem markar heildarumgjörðina. En hús eru táknræn fyrir okkur sjálf, líkama, persónu osfrv. Eitthvert stórt hús gæti táknað vangaveltur um stöðu þína út á við. En tannadraumar eru gjarnan túlkaðir út frá heilsufari eða hræringum í ytra lífi eins og í viðskiptum og sem tengjast því sem sagt er og talað.

Í þínu tilviki er evt. frekar um hræringar á ytra sviði að ræða þar sem fleiri eru að missa tennur og fá kýli. Þú reynir að verjast þessum ósköpum með því að fela þig á meðan aðrir halda áfram að missa tennur. Kemst þó að því að þú ert með eina lausa tönn sjálf og kemst ekki út úr húsinu.

Þessi síðari hluti draumsins gæti bent til að þú hafir reynt að forðast átök og umtal en gerir þér eigi að síður grein fyrir hve stað þín er snúin. Svona sjálfhelda.

Vonandi tekst þér þó að finna leið út úr ógöngunum. Draumar eru stundum fyrsta vísbending þess að við þurfum að láta reyna á styrk okkar og ná áttum.

26.nóvember 2012, 12:24 Sendandi Þórey
Fyrirspurn: Góðan Dag!

Mig dreymdi atburði sem sitja í mér og valda mér smá hugarangri, ef þið hafið einhvað innlegg þá væri það vel þegið.

Ég man atburðarrásina og aðdraganda óljóst en það sem ég man er mjög skírt.

Ég var stödd á æskuslóðum en samt ekki í foreldrahúsum heldur var ég á gistiheimili í litlu, tómlegu herbergi, ein um miðja nótt og var að reyna að ná að sofa. það var einhver að veita mér eftirför og ég gat ekki sofið því ég hafði áhyggjur yfir því að viðkomandi myndi brjótast inn og meiða mig. ég var mjög skelkuð og var hrædd um líf mitt.
Ég vaknaði upp úr þessum draum og leið ekki vel, eins og ég væri enn hrædd þó ég væri vöknuð! þegar ég náði loksins að sofna aftur þá dreymdi mig að ég væri í fríi með manninum mínum ( veit ekki hvar, ekki á æskuslóðum) en við vorum allanvega að ganga inn á annað gistiheimili, herbergið var mjög stórt, fagurt, fullt af bókum (man að það voru bækur um sjálfsstyrkingu svipað og Dale Carnegie), það var góð aðstæða til að elda og rúmið var rosalega stórt og fallegt. Samt leið mér eins og ég væri hrædd inn í mér. Allt í einu var ég farin að elda fyrir manninn minn, inni á gistiheiilinu. ég var að meðhöndla kjúklingabringu og það var einhver blettur sem ég var að reyna að hreinsa (dökkur blettur). Svo var ég allt í einu komin með Sveðju í hendina og var að afhöfða önd, eins og ég væri að fara að elda hana ( var með fjöðrum og öllu). Ég man ekki hvort að öndin hafi verið lifandi þegar ég hjó á hálsinn, en það sem ég man var að í draumnum starði ég hálf hrædd á höfuðið á skurðabrettinu eftir að ég hafði höggvið höfuðið af. Ég starði á dökk dökk rauðan blóðdropa sem var á höfði andarinna frekar stjörf. Svo vaknaði ég upp úr draumnum.
þegar ég var vöknuð þá leið mér eins og ég væri ennþá hrædd!!

Mér fannst þetta mjög óþæginlegur draumur, haldið þið að hann hafi einhverja þýðingu? (Sjá svar hér neðar á síðunni).
Svar: Mjög skiljanlegt að þessi martraðarkenndi áhyggjudraumur sitji í þér. Ein leið til að skoða drauminn er út frá tilgátu um dýpri úrvinnslu á bældri reynslu bernskunnar og hvernig þér tekst að skapa henni rými í lífi þínu nú og halda áfram yfir í nýjan kafla.
Breytingar á sjálfri þér og líkama þínum kunna að vera í aðsigi.

Draumurinn er langur og skiptist í tvo meginkafla sem gætu staðið fyrir bernsku og uppvöxt og síðan fullorðinslífið.

Hús eru táknræn fyrir okkur sjálf, ýmist líkama eða sál nema hvorttveggja sé. Eftirtektarvert er að hugurinn leitar til æskustöðva í báðum hlutum draumsins, þú ert stödd á framandlegu gistihúsi, ekki þínu gamla heimili þannig að ákveðin varnarstaða einkennir upplifunina sem gæti bent til gamalla og torskildra minninga.

Í fyrri hluta draumsins ertu ein um miðja nótt á óhrjálegu og ókunnu gistiheimili, nærð ekki að sofna, finnst einhver elta þig, geti brotist inn og meitt þig. Ert skelkuð og hrædd um líf þitt, vaknar upp í angist og vanlíðan. Allt þekkt þemu í martröðum barna og ungmenna.

Þessi hluti draumsins gæti bent til bældra og erfiðra minninga úr bernsku sem eru að finna sér leið upp á yfirborðið nú í fullorðinslífinu til frekari úrvinnslu. En slíkar minningar leita oft upp þegar einstaklingur er að ganga í gegnum breytingar á sjálfum/sjálfri sér og lífi sínu.

Síðari hluti draumsins þegar þú nærð að sofna aftur, lýsir von um betri hag, ert að fara í frí með manninum þínum, tekur fram að það sé ekki á æskuslóðir en á gistiheimili en þar er herbergið sem þið fáið stórt og fallegt með bókum um sjálfsrækt og uppbyggingu. Alveg öfugt við gistiheimilið í fyrri hlutanum. Og rúmið er stórt og fallegt. Nú væri ástæða til að finna til öryggis og gleði en innst inni finnurðu samt fyrir hræðslu. Gott að þú skulir viðurkenna það fyrir sjálfri þér.

Svefnherbergi og rúm í draumi eru oft táknræn fyrir innstu þrár, tilfinningar og kynreynslu.

Aðstaða til að elda er góð sem vekur fögnuð og gæti táknað þrá eftir öruggu heimilislífi en óttinn sækir þó fljótt á, nú í formi ógeðfelldra atvika við eldamennsku fiðurfés: kjúklings í fyrstu og síðar andar. Fuglarnir gætu verið táknrænir fyrir markmið þín sem þér finnst etv. illhöndlanleg og það hvernig þú endar eldamennskuna gæti táknað innri togstreitu og óvissu og blendið mat á möguleikum þínum.

Nú er það blóðið á höfði andarinnar sem vekur þér óhug og dregur úr þér þrek og þor og þú vaknar upp. Blóð táknar gjarnan umbreytingar og nýja sköpun en blendnar tilfinningar geta þó staðið í vegi fyrir framþróun og nýrri lífsgleði sem þú þráir svo mjög. Eða ótti við eigin blóð og umbreytingar?
Sú djúpa úrvinnsla sem fram kemur í draumnum, felur þó í sér þann jákvæða möguleika að þér auðnist að brjóta þér nýjan farveg og halda vonbjört áfram. Ekki alltaf auðvelt en hefst.

15.nóvember 2012, 11:23 Sendandi Kristín
Fyrirspurn: Góðan dag..
Í nótt dreymdi mig svo skrýtin draum. En ég man ekki alveg allt, það sem ég man að ég var á leiðini í jarðaför hjá vinkonu minni sem er látin og ég var að verða sein í hana. Var að slétta á mér hárið hjá stelpu sem ég þekki mjög lítið og átti eftir að gera svo mikið áður en ég fór í jarðaförina og var alltaf að kíkja á klukkuna. Svo man ég að ég er með vinkonu minni sem er látin og við erum að reyna að komast eitthvert og við förum inní eitthvað rými og þar átti að vera hurð en það var búið að taka hurðina og steypa fyrir opið og ég man að veggirnir voru svona hrufóttir og svo finnum við lyftu og með okkur var fullt af fólki sem ég þekki ekki og þegar við förum í lyftuna þá ýti ég á hæð 7 og takkinn festist inni og það kom ekki ljós á hann þannig hann virkaði ekki og vinkona mín segir mér að við erum ekki að fara þangað og ég man ekki alveg hvort hún ýtti á hæð 2 eða 3 og svo vakna ég. Vitið þið eitthvað hvað þetta gæti þýtt ? (Sjá svar hér neðar).
Svar: Leiðsagnardraumur sem gæti bent til að þú sért að reyna að greiða úr einhverju og leitir ósjálfrátt í tengslin við þína gömlu látnu vinkonu til þess að finna hentuga úrlausn.

Þú reynir að slétta úr hárinu í byrjun draumsins. En hár er oft táknrænt fyrir viðhorf okkar eða heilsufar t.a.m. Og það að þú ert að verða of sein í jarðaförina bendir til álags, tímapressu og streitu.

Hurðin sem er lokuð og búið að múra uppí, bendir til að leið sem þú taldir heppilega að fara til lausnar málsins, hentar ekki. Þess í stað bendir vinkona þín þér á nýja leið, að taka lyftu upp.

Það að lyftan er full af fólki sem þú þekkir ekki, gæti táknað að þú sért að leita á ný mið í lífinu, og að máli skiptir að þú ert að fara upp með lyftunni en ekki niður.

Treystir leiðsögn vinkonu þinnar enda þótt lyftan fari ekki á þá hæð sem þú taldir að ætti að gera, ekki ljós á takka númer 7 sem er oft álitin heilög tala. Og ef til vill táknræn fyrir hæðina sem vinkona þín er á en þú ert ekki á leið þangað núna heldur bendir vinkona þín þér á 2. eða 3. hæð sem gæti þýtt að þar sé verkið að vinna fyrir þig nú um stundir. Tölurnar gætu svo verið áknrænar fyrir nokkra valmöguleika.

Mikilvægt að vinna áfram með þennan draum, hann á sér marga fleti, lausnin liggur hjá þér sjálfri. Svona skýrir draumar af látnum ástvinum marka oft djúp spor og fólk dreymir þá gjarnan á stórum tímamótum.



 VELDU SÍÐU: 1 2 3 4 5  Næst  >>

© 2007 Draumasetrið Skuggsjá Hönnun Design EuropA