|
|
Spurt og Svarað
| Mig dreymdi að ég væri að keyra, ég beygði niður götu og það var greinilega hált, ég ætlaði að beygja inn götu sem var til hægri en náði ekki beygjunni og byrjaði að renna niður brekkuna og bíllinn snérist í hringi og ég var að stýra honum. Og mér fannst að ég næði ekki að stoppa og ég upplifði eins og það væri engin þarna nema ég. Með von um svar :=) |
Sæll
Mig dreymdi að ég hefði misst tvo jaxla og það var ekkert annað í þessum draumi. Hvað getur það þýtt?
Kv tennur |
Dreymir mikið af draumum sem valda áhyggjum. Dreymdi í nótt að ég fór á einhverskonar ball í vinnunni, stoppa stutt, man ekki eftir aðstæðum þar en sambýlismaður minn vildi ekki koma með mér. Var í ljósgráleitum kjól sem er alveg nýr, hef aldrei notað hann í verunni ( hafði ætlað í bláleitu pilsi með mynstri í en hætti við). Keyrði þangað á bílnum mínum, er brúnleitur. Mikið var af bílum allt um kring.
Eftir ballið fór ég að hitta sambýlismann minn en hann var þá staddur í íbúð sinni sem hann leigir í verunni því hann býr með mér. Hann ætlaði að sofa þar. Hann var klæddur í þykkan frotteslopp beislitan, var ber undir. Held að ég hafi ætlað að spyrja hann hvort hann hafi ekki ætlað að koma heim. Ég var í vínrauðum leðurjakka utanyfir kjólinn.
Önnur tákn í draumnum sem ég sá voru 2 hrein samanbrotin viskustykki, nýþvegin, hvít með bláum röndum og uppþvottavél sá inn í hana, þar voru líka hlutir úr tré eins og trébretti. Vakna svo. Bestu kveðjur.
|
Mig er búið að deyma það dálítið oft að ég og einhver maður erum inni í rauðum bíl að keyra niður brekku í heimabæ mínum. Ég get ekki horft framan í manninn en ég get bara séð hendur hans. þegar að við erum komin niður brekkuna beygjum við til vinstri og svo erum við allt í einu komin á einhvern klett, (sem er ekki í runveruleikanum þar), hann skiptir um gír, tekur í höndina á mér og fer svo fram af klettinum. Getið þið sagt mér hvað þetta þýðir? |
| 9.mars 2012, 19:44 Sendandi Jóhanna |
| Fyrirspurn: Mig dreymdi að ég væri að keyra, ég beygði niður götu og það var greinilega hált, ég ætlaði að beygja inn götu sem var til hægri en náði ekki beygjunni og byrjaði að renna niður brekkuna og bíllinn snérist í hringi og ég var að stýra honum. Og mér fannst að ég næði ekki að stoppa og ég upplifði eins og það væri engin þarna nema ég. Með von um svar :=) |
Svar: Allar ráðningar sem birtast hér á vefsetrinu eru fyrst og fremst hugsaðar sem tillögur, e.k. spegill eða skuggsjá þar sem dreymendur geta speglað eigin vangaveltur og mátað við ýmsar leiðir til túlkunar. Lausnin liggur jú á endanum hjá þeim sjálfum.
Við hjá Skuggsjá leggjum áherslu á íhugunargildi drauma og þann farveg sem þeir skapa fyrir úrvinnslu og þróun í lífi og starfi þar sem margir draumar virðast gegna því hlutverki að losa um spennu og togstreitu í sálarlífinu og stuðla þannig að auknu jafnvægi þess og heilbrigði. Leysa skapandi orku úr læðingi sem oft fær dreymandann til að dýpka eigin sjálfsskilning, sjá nýja fleti á hlutunum og takast betur á við daginn og lífsverkefni sín.
Hið dulmagnaða eðli drauma skyldi jafnframt undirstrikað: draumar eiga sér marga fleti og misdjúp lög og hægt að skoða þá aftur og aftur og alltaf sjá eitthvað nýtt.
Bíladraumur þinn er mjög týpískur fyrir áhyggjur af lífsferð eða kalfa á lífsleiðinni sem þú kannt að vera að ganga í gegnum skv. hefðbundinni túlkun draumfræðanna.
Líkt og þú sért á tímamótum þar sem þú ert að færast á milli tímabila í lífi þínu og sú breyting valdi kvíða og ótta um að þú missir stjórnina: rennir stjórnlaust niður brekkuna og getir ekki stoppað; upplifir þig á sama tíma eina og varnarlausa.
Draumurinn færir ótta þinn upp á yfirborðið þar sem hægt er að takast á við hann. Heila sálarlífið og skerpa á nýrri framtíðarsýn. Og minnir á að stundum þarf að sleppa takinu og opna fyrir nýja þróun. Spurning um viðhorf.
Með ósk um gott gengi. |
| 7.mars 2012, 5:34 Sendandi Jóhanna |
Fyrirspurn: Sæll
Mig dreymdi að ég hefði misst tvo jaxla og það var ekkert annað í þessum draumi. Hvað getur það þýtt?
Kv tennur |
Svar: Tanndraumar eru alþekktir um heim allan og geta verið mismunandi í túlkun eftir heildarsamhengi draumsins og hliðstæðunnar við líf dreymandans. Margar leiðir sem sé til túlkunar.
Ennfremur er talið að útlit, heilsa og staðsetning tanna sem viðkomandi missir í draumnum, skipti máli.
Þar sem það ert þú sjálf sem missir tvo jaxla í draumnum - en þeir eru jú bráðnauðsynlegir við að tyggja fæðu og leika þar með stórt hlutverk fyrir líf og heilsu - og ekki kemur t.d. fram hvort þeir voru heilir eða skemmdir, þá er spurning hvort draumurinn hafi ekki á sér yfirbragð ótta um að missa eitthvað sem þú stendur nú frammi fyrir í lífi þínu?
Eins gætirðu hafa verið að tyggja á einhverju sem þú allt í einu losnar frá eða hlutir breytast skyndilega.
Jaxlarnir gætu í þessu samhengi verið táknrænir fyrir sjálfstraust þitt og hagsmuni, sjálfan grunninn, sem þú þarft etv. að huga betur að.
Annars eru tennur oft táknærnar fyrir fólk, ættingja og vini skv. þjóðtrúnni og það að missa tönn/tennur var oft talið fyrir missi eða fráfalli.
Gangi sem best. |
| 29.febrúar 2012, 15:51 Sendandi Elin |
Fyrirspurn: Dreymir mikið af draumum sem valda áhyggjum. Dreymdi í nótt að ég fór á einhverskonar ball í vinnunni, stoppa stutt, man ekki eftir aðstæðum þar en sambýlismaður minn vildi ekki koma með mér. Var í ljósgráleitum kjól sem er alveg nýr, hef aldrei notað hann í verunni ( hafði ætlað í bláleitu pilsi með mynstri í en hætti við). Keyrði þangað á bílnum mínum, er brúnleitur. Mikið var af bílum allt um kring.
Eftir ballið fór ég að hitta sambýlismann minn en hann var þá staddur í íbúð sinni sem hann leigir í verunni því hann býr með mér. Hann ætlaði að sofa þar. Hann var klæddur í þykkan frotteslopp beislitan, var ber undir. Held að ég hafi ætlað að spyrja hann hvort hann hafi ekki ætlað að koma heim. Ég var í vínrauðum leðurjakka utanyfir kjólinn.
Önnur tákn í draumnum sem ég sá voru 2 hrein samanbrotin viskustykki, nýþvegin, hvít með bláum röndum og uppþvottavél sá inn í hana, þar voru líka hlutir úr tré eins og trébretti. Vakna svo. Bestu kveðjur.
|
Svar: Mörg og skemmtileg tákn í draumnum og litirnir segja líka sína sögu. En litir almennt eru táknrænir fyrir orku, strauma og tilfinningar. Góð hreyfing í draumnum, heilmikið að gerast. Og kemur ekki á óvart að þú hafir munað þennan draum vel og hann hreyft við þér.
Draumrinn virðist birta ákveðna togsteitu milli vinnunnar og þíns prívatlífs og vinarsambands og um leið úrvinnslu hjá sjálfri þér um það hvert þú stefnir.
Þú ferð á vinnuball en vinur þinn verður eftir heima á baðslopp sem er beigelitaður en sá litur er gjarnan táknrænn fyrir grunnþarfirnar, jarðtenginguna, einfaldar lífsnauðsynjarnar.
Það að fara á ball er undirstrikun á árangri sem þú (og etv. aðrir) eru að ná og fagna. Bílar út um allt geta bent til tímamóta og nýs kafla; lagt er af stað í nýja ferð. Þinn bíll er brúnn sem gefur vissa jarðtengingu.
Föt eru talin táknræn fyrir okkar opinbera sjálf, hvernig við virkum á aðra og hvaða hlutverki við erum í út á við. Gráleiti kjóllinn sem þú klæðist á vinnuballinu, gæti bent til þess að tilfinningar þínar séu blendnar á milli opinbera sjálfsins og prívatsjálfsins. En vínrauði jakkinn gefur sjálfsöryggi og er liturinn táknrænn fyrir velgengni og ábata.
Draumnum lýkur á alveg hreint makalausan hátt. Þér finnst þú stödd í eldhúsi - sjálfu hjarta heimilisins - og sérð líka þvottavél og inn í hana. Enn og aftur er verið að minna á föt og að stundum þurfi að stokka upp út á við sem heima fyrir; þvo bæði gamalt og nýtt. En inni í þvottavélinni voru gömul áhöld sem hér áður fyrr voru notuð til þvotta.
Þessi sviðsmynd í lokin með tveim hvít-bláröndóttum viskustykkjunum, (táknræn fyrir sambandið?), virðist skapa svigrúm til íhugunar og yfirvegunar og góðrar tengingar milli þess gamla og nýja í lífi þínu. Viskustykki geta táknað ýmsa hluta lífs okkar og bæði hvíti og blái liturinn eru táknrænir fyrir skýrleika og sátt. Ekki láta áhyggjur af hinu veraldlega blinda þér sýn, lífið er hér og nú og hversdagurinn dýrmætur! |
| 24.febrúar 2012, 16:10 Sendandi |
Fyrirspurn: Mig er búið að deyma það dálítið oft að ég og einhver maður erum inni í rauðum bíl að keyra niður brekku í heimabæ mínum. Ég get ekki horft framan í manninn en ég get bara séð hendur hans. þegar að við erum komin niður brekkuna beygjum við til vinstri og svo erum við allt í einu komin á einhvern klett, (sem er ekki í runveruleikanum þar), hann skiptir um gír, tekur í höndina á mér og fer svo fram af klettinum. Getið þið sagt mér hvað þetta þýðir? |
Svar: Draumurinn hefur á sér yfirbragð djúprar úrvinnslu. Gæti bent til þess að þú standir á tímamótum og íhugir breytingar á lífsferð þinni en bílar eru gjarnan tákn fyrir ferð okkar í gegnum lífið.
Rauður litur bílsins og brekkan kunna að vera undirstrikun á að þú skynjir vissa áhættu í lifi þínu nú og óttist hvað verður.
Maðurinn, sem er við hlið þér en þú sérð ekki, gæti verið táknrænn fyrir dulda þætti í sjálfri þér sem leita útrásar á yfirborðið. Hendur hans tákn um þörf þína fyrir aðstoð frá einhverjum sem þú trúir á og sem gæti lagt þér hjálparhönd í aðstæðum þínum nú þannig að þú sért ekki alein að berjast.
Klettar eru taldir táknrænir fyrir ákvarðanatöku sem getur breytt lífi okkar verulega og það að þið beygið skyndilega og farið fram af, gæti þýtt að breytingin verði öðruvísi en þú hélst í upphafi. En það er haldið í hönd þér í þessum breytingum.
Það að draumurinn á sér stað í heimabæ þínum gæti bent til upprunatengsla þinna í lífi og/eða starfi og að þar þurfi að endurskoða. Ef til vill þarftu að aftengja þig frá fortíðarfjötrum til þess að geta haldið ótrauð áfram og boðið lífinu byrginn?
Gangi vel! |
|